Parket er okkar sérsvið
Sérhæfum okkur í parketslípun, parketlökkun, parketviðgerðum og parketlögnum fyrir heimili, fyrirtæki, íþróttafélög og opinberar stofnanir
Fallegt parket er mikilvægur hornsteinn í þeirri upplifun sem fólk vill skapa fyrir heimili sín eða fyrirtækjaeigendur fyrir starfsmenn sína og viðskiptavini. Það er þó ekki sama hvernig perket er meðhöndlað. Parkó ehf. hefur sérhæft sig í lagningu og meðhöndlun parkets, jafnt fyrir heimili sem fyrirtæki. Við leggjum ríka áherslu á ráðgjöf og þjónustu til handa okkar viðskiptavinum og leggjum okkur fram við að koma til móts við óskir þeirra. Við höfum mikla reynslu af því að vinna með innanhúsarkitektum og prófa nýja og spennandi hluti til að ná fram sérstöku útliti viðargólfa sem gerir þau einstök og áhugaverð.
Við leggjum áherslu á gæði í þjónustu og efnisvali
Við notum einungis hágæða efni frá viðurkenndum aðilum í öllum okkar verkefnum. Það tryggir betri árangur og endingu viðargólfanna. Við parketslípun notum við einungis vélar sem hæfa atvinnumönnum til að ná upp gömlu og slitnu lakki eða litum sem farið hafa í viðinn. Um leið tryggjum við að rykmyndun verði sem allra minnst (í raun ryklaust) þannig að lítil sem engin óhreinindi verða vegna verksins á heimilinu eða í fyrirtækinu. Athugið að varasamt getur verið að fara af stað í að slípa parket ef menn eru ekki vanir þar sem auðvelt er að skemma parket með rangri beitingu vélanna. Það sama á við um parketlökkun. Mikilvægt er að notast við hágæða lökk til að vernda viðinn sem best gegn daglegu álagi. Þegar við olíuberum sólpalla notum við einungis efni sem þola vel íslenska veðráttu.
Ánægðir viðskiptavinir
Ánægðir viðskiptavinir Parkó eru okkar bestu meðmæli.

Flott vinna get bara mælt með þeim
16.11.2017Slípuðu,hvíttuðu og lökkuðu hjá mér parketið Flott vinna get bara mælt með þeim

Snilldarþjónusta og fullkominn litur á nýja gólfinu !
25.02.2017Snilldarþjónusta og fullkominn litur á nýja gólfinu !

Topp náungar!
14.11.2017Topp náungar!

Frábær þjónusta og fagleg vinnubrögð.
29.04.2016Slípuðu hjá okkur parketið og hvíttuðu. Rosalegur munur og gæti ekki orðið betra. Frábær þjónusta og fagleg vinnubrögð. Takk fyrir okkur!
Parket er okkar líf og sál
Við notum einungis hágæðaefni frá viðurkenndum aðilum í öllum okkar verkefnum. Það tryggir betri árangur og endingu viðargólfanna. Við parketslípun notum við einungis vélar sem hæfa atvinnumönnum til að ná upp gömlu og slitnu lakki eða litum sem farið hafa í viðinn. Um leið tryggjum við að rykmyndun verði sem allra minnst (í raun ryklaust) þannig að lítil sem engin óhreinindi verða vegna verksins á heimilinu eða í fyrirtækinu. Athugið að varasamt getur verið að fara af stað í að slípa parket ef menn eru ekki vanir þar sem auðvelt er að skemma parket með rangri beitingu vélanna.
Parketlögn
Við leggjum nýtt parket, hvort sem óskað er eftir gegnheilu parketi (límt parket), fljótandi parketi eða plastparketi.
Olíumeðhöndlun parkets
Við meðhöndlum parket með sérstökum olíum.
Parketviðgerðir
Við lagfærum parket hvort sem það eru skemmdir eða gliðnun svo dæmi séu tekin.
Parketlökkun
Við lökkum parket hvort sem um er að ræða nýtt eða gamalt (eftir parketslípun). Verður eins og nýtt.
Bæsun parketgólfa
Við bæsum parketgólf.
Slípun sólpalla
Viðhald á sólpöllum við heimahús, fyrirtæki eða sumarhús.
Parketslípun
Við slípum upp eldri parket (spónarparket, gegnheilt parket, plankaparket, harðparket og viðargólf).
Parketlitun
Við litum parket til að fá fram sérstakt útlit.
Parket er það sem okkar dagar snúast um
Parkó tekur að sér verkefni af öllum stærðum og gerðum. Við er með áratuga langa reynslu í öllu sem snertir viðargólf (parket) á heimilum, fyrirtækjum, íþróttahöllum og æfingasölum og síðast en ekki síst í opinberum stofnunum. Fylgstu með okkur á samfélagsmiðlunum og sjáðu myndir frá okkar daglegu störfum. Starfsmenn Parkó ehf. eru sérfræðingar í öllu sem snýr að parketi (öllum gerðum viðargólfa) og stein (öllum gerðum steingólfa). Hvort sem það er lagning á nýju parketi, viðgerð á eldra parketi, slípun parkets, lökkun parkets eða litun þess. Einnig hafa þeir áratuga reynslu í steinhreinsun. Það er að segja hreinsun á öllum tegundum steingólfa. Hvort sem það er marmari, flísar, bomanite eða hellur þá geta sérfræðingar Parkó ehf. framkvæmt kraftaverk. Hafir þú sérstaklega áhuga á þjónustu okkar hvað varðar steinhreinsun þá mælum við eindregið með að þú lítir við á vef okkar http://www.steinhreinsun.is og skoðir myndir okkar af steingólfum fyrir og eftir meðhöndlun okkar sérfræðingar.
Við leggjum metnað í að þróast og verða betri með degi hverjum til að tryggja að viðskiptavinir okkar fái bestu ráðgjöf og úrlausn sem völ er á
Hafðu samband ef þú ert að hugsa um parketslípun, parketlökkun, parketlögn, parketviðgerðir eða eitthvað annað sem snýr að parketi eða sólpöllum.
Hafðu samband
Hafðu samband og segðu okkur frá verkefninu sem þú stendur frammi fyrir. Parket sérfræðingar okkar eru reiðubúnir til að aðstoða þig.
- Við erum á höfuðborgarsvæðinu
- parko@parko.is
- +354 821 5880